Breytt skólahald
Miklar breytingar verða á skólahaldi á næstunni. Í stuttu máli verður það þannig að helmingur bekkja mun mæta annan daginn og hinir hinn daginn. Starfsmenn munu því mæta annan hvern dag. Markmiðið er að ekki séu allir í húsinu á sama tíma og koma þannig til móts við tilmæli frá trúnaðarlækni vegna Covid- 19 veirunnar. Bekkirnir munu sem sagt vera fullan skóladag en bara annan hvern dag. Sérgreinar falla niður sem og sameiginlegt borðhald. Samband hefur verið haft við foreldra vegna þessara breytinga og munu þeir fá upplýsingar reglulega frá bekkjakennurum og stjórnendum um gang mála.