Ekkert skólahald um óákveðinn tíma
Þær fréttir voru að berast að starfsmaður Klettaskóla hefði greinst með Kóronaveirusýkingu. Í samráði við fulltrúa almannavarna og sóttvarnalæknis fellur skólahald niður um óákveðinn tíma.
Foreldrar og starfsmenn þess bekkjar sem viðkomandi starfsmaður starfaði í verða látnir vita um þær ráðstafanir sem gera þarf en starfsmaðurinn er sem betur fer ekki alvarlega veikur og á batavegi.
Það verður því ekkert skólahald á morgun, miðvikudag 17. mars. Farið verður yfir stöðuna með fulltrúum sóttvarnalæknis og foreldrar og starfsmenn upplýstir í kjölfarið um framhaldið.