Góðvild gefur

Það eru grundvallarréttindi hvers manns að geta tjáð sig. Í Klettaskóla notum við fjölmargar leiðir til að tjá okkur. Við tjáum okkur með orðum, tákn með tali, líkamstjáningu, svipbrigðum, hljóðum og síðast en ekki síst með þar til gerðum tjáskiptatölvum. Þeir nemendur sem eiga erfitt með að gera sig skiljanlega eiga þess kost að læra á tjáskiptatölvu til að eiga samskipti við félaga sína og starfsfólk. Hjálpartæki sem þetta er líkt og hækjan er fyrir þann sem er haltur eða hjólastóll fyrir þann sem ekki hefur mátt í fótunum. Tjáskiptatölvan er eitt mikilvægasta hjálpartækið vegna þess að með því getur nemandinn tjáð tilfinningar, vilja sinn og líðan. Hversdagslegir hlutir eins og matur getur verið ansi mikilvægur þáttur og nemandinn gengur frá matarvagninum, stoltur með grænu baunirnar sem hann bað um en afþakkar hinsvegar sultuna sem fyrirfram þykir sjálfsagt að hann vilji. Það jafnast ekkert á við brosið sem brýst fram þegar gagnkvæmur skilningur er á tjáningunni. Nemendur tjá sig um óskir sínar og þrár með hjálp þessarar tjáskiptatölvu.
Skólinn, hefur í dag, fengið góða gjöf frá Góðvild styrktarsjóði en fulltrúar Góðvildar komu færandi hendi með þrjár nýjar Indi tjáskiptatölvur. Með þessari rausnarlegu gjöf fá fleiri börn innan skólans tækifæri til að læra að tjá sig. Þjálfunartölvur af þessu tagi koma sér einkar vel og skipta miklu máli í námi nemenda skólans. Það er ómetanlegt að eiga góða að og við þökkum kærlega fyrir okkur.